*þú ert það sem þú borðar*

..þar sem bomburnar blogga..

13.04.2007 19:19:38 / tinna

Hún á afmæli í dag.....

 
Til hamingju með afmælið elsku

 

Fríða mín.....Takk fyrir frábæra

 

köku í gær....:)

  


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 12:00:32 / tinna

Honey.....I'm home!!!!

jæja þá erum við komnar heim í heiðardalinn:)....allavega ég, Dana og Helga.....Fríða mín vonandi áttu góða páska þarna í borginni:)

 

En allavega...var svona að velta því fyrir mér hvort við ættum ekki að hittast....alveg týpískt samt að þið skoðið ekki bloggið um páskana!!!

 En hvað segiði....Hvar ætlar fólk að horfa á X-factor...eins og þið vitið þá er ekkert stöð 2 í torfkofa foreldra minna við árholt 5!!!...og eigum við ekki að djúsa saman fyrir Greifana???

 

Endilega hafiði samband!!

 

*Túrbó*


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 14:22:22 / Helga

Páskadjamm

Góðan daginn dúllurnar

VIKA í sæluna ... er farið að hlakka svo til .. jæja JELLY gellur núna verður aldeilis tekið á því ... ;) er það ekki ???

 

Staður ???

Stund ?? (er ekki viss hvenær greifaballið er)

 

Hlakka til að sjá ykkur ...

kv. ein að deyja úr leiðindum í skólanum ...

p.s er komin með vinnu :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 14:44:50 / Helga

Dublin

 

Jæja núna kemur smá ferðasaga, ákvað sammt að hafa bara svona myndablogg ;) 

Þegar við lentum út í dublin voru rútur sem biðu allra íslendinganna svona 2 risastórar, en nei ekki fyrir okkur 6 sem vorum saman því við vorum jú einu íslendingarnir á þessu hóteli sem við vorum á, enda var það lang dýrast og flottast ;) svo við fengum bara sér kálf fyrir okkur, leðurklæddan og alles og var það mjög næs.. þurftum ekki að bíða eftir neinum og svoleiðis ;)  

 

Svo komum við á Hótelið sem er BARA flott og var þessi blessaði kall sem beið okkar og tók töskurnar okkar á gullvagn og kom svo með þær upp á herbergi ;) bara flottur ..

Svona leit svo herbergið út, inniskór við rúmið og svo punkurinn yfir i-ið ........

..... það var að sjálfsögðu ógeðslega gott súkkulaði á rúminu sem kom á hverjum degi, sjitt hvað það var gott mmmm

Mannlífið var svo misjafnlega skrautlegt þarna í dublin og vakti þessi mína mestu athygli, sjitt hvað hann var ógeðslegur maður !!!!

St. Patricks day var síðan haldinn hátíðlegur þarna á laugardeginum og voru allir íbúar dublin GRÆNIR í bókstaflegri meiningu, og urðum við að falla inn í hópinn svo það voru keyptir alls kyns hattar og drasl og er þetta svona smá sýnishorn... ;)

Pöbbarnir voru síðan AÐEINS skoðaðir, ekkert mikið sammt heheh held að fyrsti bjórinn hafi yfirleitt verið komin niður fyrir hádegi, sammt ekki hjá mér.. heh ég lét kvöldin nægja ... Írsku pöbbarnir eru mjög líflegir og alls staðar trúbbar að spila og svo á einum sem við fórum á voru svona steppdansarar sem voru bara flottir .....

Búðirnar voru svo aðeins skoðaðar og svoldið mikið keypt, enda hægt að gera mjög góð kaup þarna þó svo eins og eiginlega alls staðar annars staðar voru merkin bara á mjög svipuðu verði og hér heima.. Hér er mynd af einu mollinu sem við fórum í..

Það sammt sem stóð svona eiginlega upp úr hjá mér í kaupunum voru þessir blessuðu skór ;) 

Svo voru það bara svona flottir drykkir sem ég drakk ekki þessi helvítis Guinners ojj djöfull er hann vondur !! Fórum einmitt í skoðunarferð um borgina með íslenskri fararstjórn og þá sáum við einmitt Guinners verksmiðjuna, heimili trommuleikarans í U2, forsetaheimilið, dádýr og fullt af svona skemmtilegum hlutum ;)

Hérna er svo annað dæmi að mannlífinu þarna, hér eru þrír heimilislausir félagar búnir að koma sér vel fyrir með sæng í einhverju skoti... stoppuðum hjá þeim í dágóða stund og gáfum þeim svo fullt af pening ;) sem hefur sennilega verið nýttur í eitthvað nauðsynlegt eins og t.d bjór..

Svo varð ég bara að láta fljóta með mynd af þessari elsku, sem var ansi skrautleg þetta kvölið með allt upp um sig greyjið ... og ég held meira að segja að þetta hafi verið kynskiptingur svei mér þá ...

En jæja ég held að þetta ég komið GOTT hjá mér ...

Knús -H.D.A-


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 12:20:26 / tinna

Ferðasaga???

Jæja Helga....ég vil fá ferðasögu og kannski bara myndir....þar sem ég veit að þetta var snilldar ferð....:)

 

Fríða mín takk fyrir síðast....man ekki mikið en ég man eftir þér:)

  


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 16:40:48 / Helga

Mánudagur

Jæja núna er enn einn mánudagurinn kominn !!! Alveg ótrúlegt hvað þessar vikur líða allt of hratt... sem er ekki hentugt fyrir svona tossa eins og mig því þá styttist alltaf meir og meir í blessuðu prófin. Talandi um prófin, ég er svo einstaklega heppinn eða þannig í sambandi við þau núna!!!! er búin síðasta daginn eins og alltaf sem er bara óþolandi og það þýðir að ég missi af eurovision, eða þið skiljið ég missi af djamminu, get kanski alveg horft á keppnina sjálfa 8| alveg hreint óþolandi ..

Helgin einkenndist svo bara af einhverju hangsi, fór reyndar á rúntinn með Tinns og Frídos á föstudagskvöldinu sem var bara gaman og skemmtum við okkur mjög vel við að horfa á skrítna fólkið sem var á djamminu... Laugardagskveldinu eyddi ég svo með Aðaldísinni minni sem ég var að passa meðan foreldrarnir skelltu sér á árshátíð .. :D:D

Svo er 6. mars á morgun og kallinn minn á afmæli, veit sammt ekki hvort það sé einhver gleði við það, hehehe eiginlega bara sorg ... þar sem þetta er orðið svo hundgamalt 8):) þetta er alveg svakalegt og vil ég þá nýta tækifærið og óska Fríðu minni til hamingju með sinn kall í gær :D

Styttist svo óðum í páskana, hlakka svo til að komast aðeins heim til mömmu :*. Svo er spurning hvort við Jelly gellur eigum ekki að bregða undir okkur betri fætinum og skella okkur á 1 stykki djamm saman þá.. hvernig lýst ykkur á það?? Er eitthvað komið á hreint hvað verður um að vera heima á páskunum, væri mjög þakklát ef einhver gæti sagt mér það :)

En jæja best að fara gera eitthvað að viti þ.e.a.s horfa á Rachel Ray þar sem hinn ofurfallegi Luckas úr one tree hill er að koma til hennar :D

-HDA-

P.s Tinna ég er að fara til útlanda í næstu viku :haha::haha


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 10:49:41 / aheba

Algjört möst ...

Þið bara verðið að taka þátt í nýju skoðanakönnuninni hérna til hliðar .. þið ÖLL sem skoðið þessa síðu ! :lol:

 Þetta var umræðuefni hjá mér um helgina og ég er með sterka skoðun á þessu - nánast alveg viss um að ég hef rétt fyrir mér !!! :)

Kjósið beibs *

-AHeba


» 36 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 12:47:44 / tinna

..............................................

Jæja bara nokkrir tímar í rosa hitting hjá

jelly stelpunum í Reykjavík........það er

sko bannað að beila!!

 

Vildi ekki hafa þessar myndir af þessu "ljóta" hótelli sem Helga er að fara á....heheh!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 11:42:03 / Helga

Dublin

Gleðilegan föstudag dúllurnar mínar ;)

Jæja lítið í fréttum eftir þessa viku.. verkefni í skólanum standa bara upp úr alveg ótrúlegt hvað þessir blessuðu kennarar þurfa alltaf að demba á mann öllu á sama tíma ... !!!

En það rættist heldur betur úr vikunni í gær þegar ég fékk sms um að ég væri að fara til Dublin 15-18 mars og það væri búið að panta ferðina :) víííí  Verðum 5* hóteli sem er staðsett á aðalverslunargötu Dublin svo ég er bara mjög sátt ...:haha: læt fljóta með myndir af hótelinu sem við verðum á ..

Dublin hotels

Dublin hotels

Westbury herbergi

Ég held að ég eigi alveg eftir að hafa það ágætt þarna .. svo er víst svona hagstætt að versla þarna og ekki er það nú verra :)

En já vil svo bara enda á því að óska ykkur góðrar helgar ;) vonandi eigiði eftir að hafa það gott um helgina:P

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 15:53:21 / Helga

Veikindi og óVinkona !!!!!!

já góðan mánudag lesendur kærir ..

Ég ákvað að taka svona fallega á móti helginni og veikjast á föstudaginn, alveg uppáhaldið eða þannig .. kvef, beinverkir, hiti, hálsbólga og HELLUR dauðans ... bara allur pakkinn.. þannig ég er bara búin að liggja undir sæng alla helgina og geri reyndar enn, ömurlegt ... þessi veikindi settu nú líka punktinn yfir i-ið í nótt þegar ég vaknaði ... nánar tiltekið klukkan sex alveg stífluð og ógeðsleg, skelli mér fram á bað og slysast til að líta í spegil ... og viti menn er ekki mín versta  óVINKONA mætt á svæðið jújú .. svona falleg að vanda .. og STÓR .. og hefur stækkað með hverri mínútu ... ohhhh ég hata hana svo mikið ... og þeir sem þekkja mig vita hvernig vörin mín lítur út núna, já ekki falleg !!!!!!!!! já svona er lífið mitt þessa stundina ...:klikk::klikk:

út af þessum veikindum missti ég að skírn sem búið var að bjóða mér í á sunnudaginn, var búin að hlakka til í viku að fara því það er ekkert betra en að fara í veislur til hörpu, en það verður víst að bíða betri tíma og já barnið hlaut það fallega nafn MARÍA ;)

Svo vil ég óska eldri bróðir mínum til hamingju með daginn, hann á víst afmæli og er að fagna því á skíðum í austurríki svo ekki fæ eg kökur hjá honum .. :P

kveðja lasarusinn:cry:


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 15:43:50 / Helga

Góður listi

Snilldar listi sem ég fann sem er bara gaman að lesa ;)  

 

Þú ert 90´s barn ef þú:

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

Þú áttir tölvugæludýr

...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!
 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 14:33:55 / Helga

Alveg að koma helgi !!!

Hellú Hellú

Held að það sé komin tími á blogg þó ég hafi nákvæmlega ekkert að segja... Síðasta helgi var mjög róleg hjá mér bara, var bara að passa litlu skottuna mína hana Aðaldísi á föstudagskvöldinu missti þar af leiðandi af djammi með Fríðu, Dönu og Tinnu en það verður bara að bíða betri tíma:D, svo á laugardaginn gerði ég nákvæmlega ekki neitt.. nema horfði á eoruvison undankeppnina um kvöldið, eru þið að grínast með lögin sem voru þetta kvöld ?? 8|8| vægast sagt ömurleg að mínu mati ...

Var svo voða myndarleg húsmóðir og eldaði hrygg á sunnudagskveldinu, fullt af meðlæti, og heppnaðist líka svona ægilega vel hjá mér .. hehe Tinna er enn vælandi yfir að ég hafi ekki boðið henni í mat ég skil það reyndar mjög vel þar sem ég er þessi líka afburðar kokkur 8) Tinna kannski seinna:haha::haha:

Vil ég nýta tækifærið og óska Kiddý innilega til hamingju með prinsinn í gær, alveg ótrúlegt að hann skuli vera orðin 1 árs !! ;) Kem í afganga um helgina hehe er einmitt að spá í að skella mér norður í sæluna um helgina ... Búið að bjóða mér flug og ég er að spá í að nýta mér það, en það kemur allt í ljós seinna í dag ..

En já vil ekki kvelja ykkur lengur með þessu leiðinda bloggi, er bara í svo HRIKALEGA leiðinlegum tíma og vantaði eitthað að gera .. og svona til tilbreytingar verið þá duglega að kommenta ..

Já svo er mér ekki hætt að langa til ÚTLANDA :cry::cry:

Image and video hosting by TinyPic

HDA


» 13 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 15:05:34 / Helga

Langar svoooo til útlanda !!!

Hver vill koma með mér til útlanda í sumar !!!!!!

Er í svo ógeðslega niðurdrepandi og leiðinlegum tíma að eina sem ég get hugsað um er að fara til útlanda til að bjarga mér einfaldlega frá andláti  8)8)

Image and video hosting by TinyPic

Image and video hosting by TinyPic

Þessar tvær eru teknar af svölunum á herberginu mínu á  mallorca síðasta sumar og mikið væri ég til í aðra svona ferð núna !!!

Það eru svo allir velkomnir með mér :D Ekki væri svo verra að vera með þennan við hönd, hann var alveg sjúkelga góður :haha:

Image and video hosting by TinyPic

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 11:52:02 / tinna

Jellyklúbbur??

Jæja Reykjavíkur Jelly.....hvað segiði um að koma til mín á miðvikudagskvöldið og við höldum smá klúbb......ég skal vera með veitingar....mig er farið að dreyma um kókosbollurétt þannig að ég ætla að skella í þannig.....Dana mun vera sett í það að sjá um skemmtiatriðin.....einn dans eða svo:)
Endilega kommentið...vonandi eru þið Húsvísku Jelly duglegar að hittast....og kannsi þið farið að kíkja í borgina og þá getum við hisst allar.....:)



» 11 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 13:20:56 / Dana

AFMÆLISBARN DAGSINS!!!

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN TINNS OKKAR!!!!!!

ALDURSFORSETINN OKKAR ER ORÐIN 22 SEM ÞÝÐIR BARA EITT... VIÐ FYLGJUM ALLAR Á EFTIR STELPUR MÍNAR!!!!!!! við verðum farnar að sauma í klúbbnum fljótlega;)

***HAFÐU ÞAÐ GOTT Í DAG TINNS***

KNÚS OG KOSSAR!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12